Flokkur: Pelican
10.01.2007 08:21
HOME
FERÐIN ER BÚIN
ALLIR PELICANAR ERU KOMNIR TIL ÍSLANDS.
MEIRA AF MYNDUM KEMUR INN BRÁÐLEGA
02.01.2007 19:49
close at two. Shame !
... WHY DO YOU ORLANDO PEOPLE CLOSE YOUR CLUBS AT TWO IN THE MORNING?
shithole!
Árið 2007 er nú gengið í garð með öllum sínum kostum og göllum eins og gengur og gerist. Margir setja sér áramótaheit. Það er glatað að mínu mati. Maður stendur aldrei við þetta. Best er bara að huga að því hvað maður ætlar sér að gera í lífinu. Heildin skiptir máli.
Hvað ætlar maður sér að gera? Er það ákveðið? Hjá sumum, já!
Áramótin gengu í garð hér í Florida fimm tímum eftir að þau gengu í garð á Íslandi. Þegar klukkan var sjö hjá okkur að kvöldi þá voru ættingjar og vinir á fróninu að fagna komandi ári með viðeigandi sprengjum.
MAGNAÐAR SPRENGJUR!!!!! wóhó
Það var ekki mikið um flugelda hér í Orlando en við gerðum nú gott úr öllu saman og keypt voru nokkrir flugeldar sem skotið var upp með tilgerðarlegum látum ferðamanna sem bjargaði þó þessum hallærislegu ílu-hljóðum sem komu frá þessum svakalegum sprengjum sem keyptar voru í Alberti.
Kalkúnn að hætti Whole Food var borðaður hér í Florida. Lífið getur verið svo auðvelt. Fara í matarbúð panta eldaðan mat á fyrirfram ákveðnum tíma. Klukkan fjögur á gamlársdag fóru svo vinnukonurnar og náðu í tilbúinn kalkún í matarbúðinni sem ömmu finnst svo æðisleg. Hann var góður.
Eftir matinn var byrjað að spila póker. Ég fór til strákana ( Hrólfur og Gunni) og við reyndum að prenta út skjal fyrir komandi skemmtistaðarölt okkar seinna um kvöldið. Það gekk ekki upp svo við ákváðum bara að treysta á persónutöfrana og vona að lúðakaninn myndi taka mark á Íslendingum.
Svo fórum við yfir. Hrólfur fór beint inn í Póker-game. Sem hann rústaði þó með samkeppni frá Emmu Hönnu. Fólkið á 3410 Santa Monica Dr. horfði á með eftirvæntingu og spenningi. Líkt og gert er í sjónvarpinu hérna. Þetta var fjör. Á meðan spilað var þá fóru veigar miklar í líkama unga fólksins til að koma öllu í réttan gír fyrir klúbbana. Keypt var fyrr um daginn mikið magn af prósentu drykkjum sem hafði sín áhrif á skemmtanagildi kvöldsins. Keypt var epla-snaps með eitt í huga. Minnast stjórnarferð sem farin var í fyrra. Við komumst hins vegar ekki í það að snapsa eitt glas. En við eigum það inni.
Þegar klukkan sló tólf var fagnað hérna. Um leið og búið var að panta leigubíl. Stefnan var tekin á Universal CityWalk. Stór leigubíll kom rétt um hálf eitt og við settumst inn og nutum ferðarinnar með því að tala við leigubílstjórann um margt mjög óviðeigandi. Mest var þetta mjög óviðeigandi íslenska sem allir íslendingarnir kunnu vel að meta. Hæ Hitler og tveir puttar!
Gleðin að taka völdin! 
Við vorum öll í okkar töff dressum og vorum tilbúin að sigra heiminn í Orlando. Athyglin sem við fengum. Ég skil þetta vel. Við byrjuðum snemma á því að heilla fólkið í kringum okkur. Eða um leið og allir voru búnir að pissa eftir leigubílsförina. Gekk vel.
Við gengum niður CityWalk og ákváðum að fara inn á skemmtistað. Við fórum inn á stað sem heitir THE GROOVE! Hann er mjög flottur og töff staður en bættist þó við þann töffleika þegar sex ótrúlega heitir íslendingar gengu þar inn. Mikið var um að fólk var að bjóða í umganga og tekið var vel á því. Einn úr hópnum tók það til að eftir einn umgang ( þó hálfan hjá honum) þá kastaði hann restinni upp. Við skildum ekki af hverju þessi einstaklingur sem hafði verið
svo duglegur að drekka og halda öllu uppi, héldum að hann væri í raun sá sem myndi þola drykkjuna mest hefði svo ælt. Ég tel að þetta hafi verið allt þetta Berry sem hann fékk með matnum. Love and respect! Dýrka þig!
Jelly-sprautu-skotin gerðu lukku! 
Groove var opinn til tvö um nótt. Það virðist vera tímasetningin fyrir lokun djammsins hérna. Kaninn byrjar mjög snemma að djamma. Annað en íslendingar. En það á sér líklega margar skýringar. Ein sem mér dettur strax í hug er að kaninn fær aðeins tvær vikur í frí á ári og ef það er að djamma þarf það mjög líklega að fara að vinna daginn eftir og þá er gott að hætta fyrr en seinna til að vera hress daginn eftir. Kannski er þetta bara kjaftæði.
Þegar búið var að kveikja ljósin á The Groove þá missti staðurinn allt groove-ið. Því að það var verið að loka. Hann lúkkaði samt enn vel. Við fórum öll út og Ellen var í sínu hressasta. Við byrjuðum að tala við innfædda og drulla yfir þessa ákvörðun um að loka svona snemma. Við kynntumst nokkuð af fólki sem buðu okkur í heimaparty - fengum fimm boð um party. Við svöruðum öllum á þennann veg: We don´t trust you. You could kill us. ! Þó var sumt fólkið mjööög skemmtilegt. Flest allt.´
Hrólfur og Cindy. Hún var hress!
Willy og Silly.
Við ákváðum að þessu kvöldi myndi ekki ljúka og ákváðum því að fara með Taxi í down town Orlando. Church street nánar tiltekið. Við stoppuðum fyrir utan Clup Paris og inn. - Krakkar og djammfélagar endum þetta hér. Það var ákveðið . DÍLL?
CLUB PARIS
Hressa Ellen! Jelly-bjóðari
Við gengum svo á Church street og skoðuðum mannlífið. Við ákáðum svo stuttu seinna að heimför skildi haldin. Staðirnir voru hættir að hleypa inn. Á leiðinni að Taxanum var gaur með gula slöngu um hálsinn. Gunni fór nálægt, hann var sáttur með sig. Hann er kúL.
Við fengum bíl mjög fljótlega. Stuttu eftir að ég var búinn að hlaupa upp að löggu og segja að það væri maður sem myndi kannski skjóta okkur. Ég veit. Asnalegt og stupid í Bandaríkjunum. En hann var mjög fínn og sagði okkur hvar bílinn hans væri ef við myndum lenda í vandræðum. Svo í raun vorum við komin með Lífvörð. Svo þakkið mér fyrir það.
Við vorum sirka hálftíma á leið heim og þegar heim á Ventura var komið var ákveðið að fara bara að sofa. Allir voru orðnir þreyttir og þrír áttu bókað golf kl: 12:30 daginn eftir. Mesti gólfarinn svaf yfir sig og komst ekki í golf. Enda mikið vankaður frá kvöldinu áður. Ekki gott. Strákar, ég bið um fyrirgefningu. Takk! Ég skal taka mig á í golfinu. Ég spila næsta sumar. Í Leirunni, ég býð!
Heim var farið að sofa eftir vel heppnað kvöld.!
Hópurinn frá Íslandi....! og einn pólverji
Það gerðist mikið skemmtilegt en best var það þó að vera þarna sex íslendingar saman að rugla.
Lífið er list.
Gleðilegt ár.
Kveðja,
Eyjólfur.
30.12.2006 04:33
Hard nipples!
. . . ég er með JELLY-BELLY rass!
Lífið í Florida er mjög afslappandi og ótrúlega ekki jólalegt. Það er eins og jólin hafa bara
farið framhjá manni eins og flugeldar. Það er ágætt að mínu mati. Það er fínt að upplifa allt
aðra stemningu en maður gerir á Íslandi ár eftir ár. Fín tilbreyting.
Hins vegar eru áramót ekki á morgun heldur hinn (samkvæmt því tímatali sem ég er á) og þá
væri maður til í að vera á djamminu heima. En þá er bara að gera gott úr aðstæðum.
Við erum hérna nokkur ungmenni á svæðinu sem langar að fara á klúbba hérna en við erum
náttúrulega ekki orðin 21.árs.. en fugl hvíslaði að mér að það væri 21.aldursár sem gildir.
Þarf að finna út úr því. Margir eru spenntir fyrir Club Paris sem er í eigu P. Hilton.
Þar er aldurstakmark fyrir stelpurnar 18 ár en 21. árs fyrir strákana. Misrétti?
Við finnum út úr þessu!

.............. Kem með blogg aftur strax á morgun. ! Ég er að taka mig á Rebekka!
Bendi á að það eru nýjar myndir og myndband hér á Pelican.
Gúd shitt!
Lífið er list.
Eyjó
24.12.2006 04:27
GL

PELICAN óskar ykkur öllum
Gleðilegra Jóla....
Við höldum blogginu áfram.! áfram! áfram!
þar til ferðin er á enda.
21.12.2006 13:34
EyjóMættur
EYJO MÆTTUR
Ferðasagan:
Vaknaði snemma þann 19.desember. Gerði mig tilbúinn fyrir vinnudag í Kópavogi. Var mættur þangað klukkan 08:00 og Litlu jólin hjá krökkunum mínum voru klukkan 09:00 og áttum við saman góða stund.
Ég fór heim úr vinnunni klukkan 12:00 og þá hitti ég Laugu og kvaddi hana. Hún gaf mér jólagjöf sem mun koma sér mjög vel að notum hérna úti í Orlando. Við fórum saman að borða hádegismat og spjölluðum saman eins og við gerum best.
Ég fékk fréttir frá Huldu ferðafélaga mínum að búið væri að seinka vélinni til klukkan 18:00. Ég átti eftir að klára að pakka en var þá ekki mikið að stressa mig á þessu. Eftir hálftíma fékk ég aðrar fréttir frá ferðafélaga mínum að búið væri að seinka vélinn til 19:20. Ég var þá á leiðinni til Keflavíkur og það var mikil traffík í umferðinni. Veðrið var að versna og allir í stressi fyrir jólin. Ég kom heim og kláraði að pakka. Ég og Gréta gerðum dauðaleit að sundbuxunum mínum. Við gátum ekki fundið þær. Ég sagði þá víst góða stress-setningu: ,,Ef ég vinn ekki þessar sundbuxur þá mun ég ekki fara í sólbað". Þegar ég var búinn að sætta mig við að ég færi nú ekki með sundbuxurnar út þá lokaði ég töskunni. Ég ákvað svo að skoða í hliðarhólfin á töskunni og viti menn SUNDBUXURNAR. Þær voru þarna að bíða eftir að verða fundnar. Þá hafði ég gleymt að ganga frá þeim frá síðustu ferð sem var í ágúst. Ég gladdist mjög.
Ég og Hulda ákváðum að fara upp á flugstöð um 14:30 til að check-in töskurnar og fá sæti. Við gerðum það. Hulda fékk sæti í 17D og ég átti að fá sæti seinna um daginn en þó var búið að taka frá fyrir sæti við hliðina á 17D. Þegar þessu var lokið þá héldum við heim og leið því við ætluðum ekki að fara upp á flugvöll fyrr en klukkan 18:45.
Ég og Gréta sofnuðum og höfðum það notarlegt í vonda veðrinu. Svo var kominn tími til að kveðjast. Gréta skutlaði mér og Huldu upp á flugvöll. Á leiðinni hefði hún getað drepið okkur í umferðinni. Haha! :-) Við komumst á heilu og höldnu upp á flugvöll og þá var kveðjustund. Síðan gengum við ferðafélagarnir í gegnum tollinn.
Ég og Hulda höfðum ákveðið fyrr um daginn að taka inn svefntölfu áður en við færum í flugið. Við sáum fram á langt flug og töldum lífsnauðsynlegt að geta sofnað í örlitla stund. Við hlógum mikið af þessari vitleysu í okkur og ímynduðum okkur að þurfa að bera annann inn í vélinna vegna svefntöfludauða. HAHA.
Svooooooo byrjar ballið. Við gengum út landganginn og ég fór niður á upplýsingaborð til að fá sæti. Mér var reddað sæti. Við ákváðum að fara síðust inn í vélina því þá þyrftum við ekki að bíða í röð út á rananum inn í vél. Á móti okku hleypur starfsmaður afgreiðslunnar hjá Icelandair og segir við okkur að það hafið verið að setja annað fólk í sætið okkar. HAAA?

Þarna er fyrsti hluti af ballinu. Hér koma nokkrir punktar til að lýsa flugferðinni.
- Það var sett flugstjóra í sætið hennar Huldu. Lélegt!
- Flugstjórinn var í vinnunni og hefði því átt að fá lélegt sæti.
- Við fengum úthlutað sæti saman en þar sat yfirflugfreyja sem var ekki í vinnu
- Hún var ekki sátt að flugfreyjan rak hana úr sætinu. Gott á hana!
- Við sátumst í þessi sæti.
- Það var mikið um unglinga og börn í kring og lætin voru eftir því.
- Strákarnir fyrir aftan okkur ákváðu að nota stólbökin okkar fyrir boxpúða.
- Hulda náði að siða þá örlítið til.
- Maturinn kom ekki fyrr en við vorum búin að vera í loftinu í tvo og hálfan tíma.
- Við gátum spjallað stanslaust í þessa tvo og hálfan tíma - þar til maturinn kom.
- Við fengum gefins rauðvín vegna seinkunnar.
- Við drukkum rauðvín með matnum.
- Minni á að við tókum líka inn svefntölfur.
- Eftir mat var þreytan orðin töluverð.
- Sofnuðum
- Ég vaknaði með þvílíka ógleði og vesen.
- Ég sat í miðjunni og maður við ganginn
- Ég hoppaði yfir hann og hljóp á salernið
- Þar ældi ég og ældi!!!
- Var að deyja í maganum
- Fór í sætið mitt og leið aðeins betur
- Hulda bað flugfreyjuna um að gefa mér þurrmat og að drekka
- Flugfreyjan kom með Ginger Ale og saltfiska. Leið betur eftir þetta.
- Við spjölluðum þar til við lentum.
- Svo hlógum við mikið
- Fórum í gegnum tollinn og náðum svo í töskur.
- Síðan var tekið á móti okkur og ferðin tók við.

Þá er innkoma mín í bloggheiminn hafin. Þetta er mjög ólíkt mér. Ég er þessi týpa sem finnst ömurlegt að blogga en hinsvegar finnst mér nauðsynlegt að lesa blogg. Sjáum hvernig þetta fer. Haha.!
...... Lífið er list.
WE BE IN A BAND.
Eyjó
15.12.2006 10:10
PELICAN
AF HVERJU PELICAN?

Pelican til að halda dagbók. Klikkuð frændsystkin.
Eyjólfur, Ellen og Rebekka eru hér til að skemmta heiminum.
Ellen sem þekkt er fyrir sleik.
Rebekka sem þekkt er fyrir fótbolta
Eyjólfur sem þekktur er fyrir leikrit
ÞAU ERU HÉR TIL AÐ GERA SKANDAL!... eða ekki!
allavega segja frá ef það gerast skandalar.!
Lífið er list.
01.12.2006 09:28
FIRST OF ALL
PELICAN IS ALIVE and well.
WE WILL OPEN THIS NEW SITE the 19th of December.
Pelican - The Florida bird
Who are we? Yes.
A girl and a boy. We are going to be fresh in Orlando, Florida
this Christmas. Going to blog about our holiday.
Do you want to lick my cousin pussy?
Do you want to ?
Do you want to ?
....Joke! She´s not that easy.. ! jeah.
Stay tuned!
- 1
