Færslur: 2007 Febrúar

08.02.2007 18:52

Hospital.

Já ég verð að segja að spítalar geta bara verið nokkuð kósý.

Allavega fæðingadeildin, ekki miskilja eg var ekki að eignast barn heldur var ég einfaldlega í að gerð á hné og kom liðþófalaus af skurðborðinu eftir 3 tíma þar inni. Já þetta átti að vera hálftími klukkutími í mestalagi en endaði í 3tímum því liðþófinn var svo ónýtur. Get ekki beðið eftir að labba, því ég gjörsamlega þoli ekki hækjur.

Nú ligg ég hér get varla hreyft mig og bíð eftir að geta farið að hreyfa mig því það er þreytandi að liggja svona eins og skata. Orðið illt i bakinu á því !

Ég missti af ballinu í gær. Frétti samt allt af stelpunum. Voða gaman hjá þeim öllum, hefði viljað vera með þeim. En það kemur ball eftir þetta, er það ekki?:) Vonandi kemst ég á það:) 

Ómerkilegt blogg. Ég verð að hafa eitthvað að gera er aðeins i pásu frá sjónvarpinu.

rebekka hækja sem verður bráðum ekki hækja kveður:)

heeeeeeeeeee.

 

02.02.2007 21:10

Hækjan.

Sæl veriði nemó er búið.  Vá hvað það var gaman, besti bekkurinn 3-E engin spurning:)

Dagurinn heppnaðist vel sem byrjaði í morgunpartýinu þar sem voru alskinskræsingar og flottheit. Eygló og Þórunn Día stóðu sig eins og hetjur:) Leiðinni var haldið niður í austurbæ þar sem Leikritið var frumsýnt, vá það var svo geðveikt og þegar Páll Óskar tók stanslauststuð varð allt vitlaust, vá hvað allir stóðu sig vel og var svo rosalega flott hjá þeim:)

Jæja þá var það bara smá pása þangað til að allir áttu að mæta um sjö til Hjördísar og kokkurinn kom að setja framm matinn og var hann nú bara fínasti matur. Hjördís þetta var æðislegt, Var ekki til nóg af gosi? hehehe:) og svo var bara fyrirpartý í framhaldi af því vá hvað það var gaman. Sumir komnir meira í það en aðrir, en ALLIR voða hressir.

Mynd númer 66

Mynd númer 130

Rútuferðin á leiðinni var rosaleg, Þvílíkur kór. En þar skildu leiðir minar við hópinn þar sem HÆKJAN gat varla labbað og hafði staulast um haltrandi eða hoppandi á einni vegna þrjósku að vera ekki á hækjum gat enganvegin farið á ballið. Var ekki sátt með það.

Mynd númer 172

En það bjargaði því hvað var gaman yfir dagin takk æðislega fyrir daginn krakkar:)

Rebbihækja:)

MYNDIR eru komnar:)

  • 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 21559
Samtals gestir: 9986
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:50:56